Nú er hún Sigrún Ásta nefnd og komin á ról
Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að snótin unga sem kvaddi sér hljóðs þegar vika var eftir af haustmánuði hefur hlotið nafnið Sigrún Ásta. Hér eru engu að síður örfáar myndir til að minna á hana og rennum við úr hlaði með tækifærisportretti af henni í fangi Valgerðar Birnu stóru systur sinnar, sem er alsæl eins og skiljanlegt er að eiga svona fína litlu systur.
Gleðin er að sjálfsögðu gagnkvæm.
Þá eru vinsældirnar töluverðar hjá afa Birni og allt í lagi að splæsa á hann einu óheftu brosi, þótt hann fái ekki mikið pláss á sjálfri myndinni.
Nafnið var tilkynnt í fámennu en góðmennu kaffiboði í byrjun mánaðar og svo fékk fjölskyldan að sitja aðeins fyrir.
Ört bætist í sarpinn "Vala að sýna litlu systur" og fær þetta sýnishorn að fljóta hér með. Það er þó aldrei að vita nema þær eigi eftir að eiga fleiri stundir saman fyrir framan spegilinn.
1 Comments:
At 1:08 PM, Sigga Lára said…
Hún Gyða Völuvinkona er einmitt nokkuð nýlega farin að setja upp nákvæmlega svona bros þegar á að taka af henni mynd.
Til hamingju með litlu Sigrúnu Ástu. Hlökkum til að hitta hana í eigin persónu, einhverntíma þegar heimilið verður ekki morandi í drepsóttargerlum.
Post a Comment
<< Home