
Þessi litla stúlka fæddist á Landspítalanum föstudaginn 17. október klukkan 11.48. Fæðingin gekk fljótt og vel og mældist sú nýfædda fjórtán og hálf mörk og 51 sentimetri. Næsta sólarhringnum eyddi hún í Hreiðrinu ásamt himinsælum foreldrum sínum, meðan stóra systir undi sér í Árbænum hjá ömmu sinni og afa.

Daginn eftir var fjölskyldan sameinuð heima og fór strax vel á með systrunum.

Meðal útvalinna gesta þann dag var Systa frænka, sem var ágætlega sátt við þessa nýju frænku sína.

Stórar systur hafa þá skyldu að fylgjast vel með því sem þær litlu gera...

...og ef sambandið er gott bjóða þær jafnvel sína dýrmætustu gripi. Báðar biðja systurnar svo að heilsa ættingjum og öðrum velunnurum nær og fjær.
6 Comments:
At 4:21 PM,
Hjörtur said…
DÚLLURNAR!
At 11:55 AM,
Anonymous said…
Kæra fjölskylda,
hjartanlega til hamingju með fjölgunina...
Þetta eru yndislegar stúlkur sem þið eigið...
Bestu kveðjur úr Grafarvoginum
Sigga Rósa, Einar og Heiða Máney
At 2:18 PM,
Anonymous said…
Hvílíkt ríkidæmi!
Til hamingju!
Bestu kveðjur frá Skeggjó
At 2:37 AM,
Anonymous said…
Yndisleg lítil englastelpa! Innilega til hamingju og hlakka til að sjá hana sem fyrst, risaknús, Anna Pála
At 1:54 AM,
Anonymous said…
Hjartanlega til hamingju með þessa fallegu snót. Það er sterkur systrasvipur :)
Okkur dauðlangar að kíkja en Lilja er með barkabólgu og restin af fjölskyldunni með hor í nös svo við látum okkur nægja að skoða myndir þar til við verðum heimsóknar-fær.
Bestu kveðjur,
Grannarnir í Killingslope
At 11:00 AM,
Anonymous said…
Sætar systur innilega til hamingju með lituna,
Frændfólkið í Blönduhlið 7
Post a Comment
<< Home